Samþykkt 19.08.2026

Gæða-, umhverfis-, og öryggisstefna

Strendingur ehf. veitir fjölbreytta og faglega verkfræðiþjónustu á sviði mannvirkjagerðar, reksturs mannvirkja og á tengdum sviðum. Þjónustan byggir á:

  • Starfsfólki með víðtæka þekkingu og reynslu.
  • Greiða jöfn laun og sömu kjör fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf.
  • Stöðugum umbótum í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum með þátttöku og í fullu samráði við starfsmenn fyrirtækisins.
  • Jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Stöðugri vinnu til að auka ánægju viðskiptavina.
  • Umhyggju fyrir framvindu verkefna og heildar árangurs.
  • Áhuga á því að hvetja til umhverfisvitundar og samfélagslegrar ábyrgðar.
  • Yfirsýn og vilja til að leita eftir sérþekkingu út fyrir fyrirtækið.
  • Þekkingu á öryggis- og umhverfismálum og ásetningi um að koma í veg fyrir slys og heilsutjón.
  • Áhuga á að taka upp nýjar vinnuaðferðir og nýta nýja tækni.
  • Réttsýni til að bregðast við gagnrýni á eigin þjónustu.
  • Skipulagi til að mæta kröfum viðskiptavina og uppfylla lög og reglugerðir.
  • Skipulagi til að standast kröfur sem fyrirtækið setur sér í heilsu-, öryggis- og umhverfismálum þ.m.t. kröfur laga og reglugerða.
  • Árverkni og vilja til að bæta og þróa þjónustu fyrirtækisins með notkun stjórnunarkerfis
Næsta stefna
Persónuverndarstefna Strendings