Verkfræðiþjónusta í yfir 30 ár

Stofnuð í Hafnarfirði, 26. janúar 1995.

Um fyrirtækið

Strendingur ehf. verkfræðiþjónusta var stofnuð 26. janúar 1995. Frá upphafi höfum við veitt fjölbreytta ráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar, þar á meðal við hönnun mannvirkja, framkvæmd og stjórnun útboða, byggingastjórnun, verkumsjón og eftirlit. Einnig höfum við sinnt rannsóknum, mælingum og innkaupum á vörum og þjónustu. Verkefni okkar eru fjölbreytt og ná allt frá minni húsbyggingum til stærri mannvirkja, svo sem fjölbýlishúsa, skóla, íþróttahúsa, sundlauga, atvinnu- og iðnaðarhúsnæðis, íbúðagatna, þjóðvega, brúa, hafna, sjófyllinga og virkjana. Viðskiptavinir okkar eru bæði eigendur mannvirkja, framkvæmdaaðilar og opinberir eftirlitsaðilar. Höfuðstöðvar Strendings eru að Dalshrauni 3, 220 Hafnarfirði.

Um nafnið

Orðið strendingur hefur sína upprunalegu merkingu úr stærðfræðinni. Í raun getur strendingur verið af mörgum stærðum og gerðum, en í einföldustu merkingu er hann þrívíður hlutur þar sem tvær hliðar eru eins marghyrningar. Nafn fyrirtækisins á samt rætur í gula tré blýantinum með rauða strokleðrinu á endanum sem var jú mikilvægasta verkfæri verkfræðinga og annarra hönnuða hér á árum áður. Blýantar, sem geta eflaust stundum verið með þrjár hliðar og kallast þá þrístrendingar, eru þó, eins og guli blýanturinn, oftast með sex hliðar og kallast í þeim tilfellum sexstrendingar.

Formúla Strendings

Rúmmál n-hliða strendings, þar sem h er hæð og s er hliðarlengd, er eftirfarandi:

Hvernig við erum byggð upp.

  1. Stjórn
  2. Framkvæmdastjóri Sigurður Guðmundsson
  3. Gæðastjórn Hálfdan Þórir Markússon
  4. Fjármál og skrifstofa Jóhanna Guðmundsdóttir

Vottuð stjórnkerfi.