Umsjón og eftirlit

 Umsjón og eftirlit

Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu við umsjón og eftirlit á verkefnum. Við höfum góða yfirsýn yfir alla samninga og að umfang/kostnaður sé í samræmi við samningsskilmála og framvindu verkefna. Við leggjum til verkefnavef til að tryggja góða upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum.

Yfirlit þjónustu

Umsjón samninga - Við höldum utan um samninga milli verkkaupa og verktaka eða seljenda og fylgjum eftir efndum þeirra og samningsskilmálum.

Kostnaðaryfirsýn - Við höfum yfirsýn yfir umfang og kostnað á hverjum tíma og réttmæti greiðslna til seljanda.

Gagnadreifing - Við höldum utan um gögn verkefnis og dreifum þeim til hlutaðeigandi aðila.

Úrlausn óviðbúna uppákoma - Við greinum áhrif og höfum umsjón með úrlausn á óviðbúnum uppákomum á verktíma, við höldum til haga orsökum og afleiðingum vegna þeirra og ráðleggjum við uppgjör mögulegra framkvæmda.

Upplýsingastreymi - Við veitum upplýsingar og stuðlum að samskiptum milli verkkaupa, ráðgjafa, ytri aðila og verktaka/seljanda. Við höldum fundi, veitum upplýsingar í formi teikninga og/eða orðsendinga ásamt því að veita aðgang að verkefnavef fyrir verkefnið.

Næsta Þjónusta
Úttektir mannvirkja fyrir byggingarfulltrúa — Við bjóðum upp á þjónustu við úttektir mannvirkja fyrir byggingarfulltrúa. Það felur í sér að við tökum á móti og yfirförum öll gögn, skoðum mannvirkið á vettvangi og metum hvort það hafi verið byggt samkvæmt gildandi samþykktum.