Hönnun
Við bjóðum upp á heildstæða hönnunarþjónustu á sviði mannvirkjagerðar sem byggir á nákvæmni, reynslu og skýrum vinnubrögðum. Við hönnun er sérstaklega horft til öryggis- og umhverfismála.
Við vinnum með lykilaðilum að því að móta heildarsýn á verkefnið, greinum þarfir og útfærum lausnir sem mæta væntingum og standast lög og reglur.
Við komum að hönnun mannvirkja frá frumhugmynd að fullbúnum lausnum. Við leggjum áherslu á að gögn verkefnis séu greinargóð og aðgengileg og eigum markviss samskipti við alla aðila verkefnisins.
Yfirlit þjónustu
Greining hugmynda og þarfa – Við greinum markmið, þarfir og væntingar viðskiptavina og skilgreinum helstu forsendur verkefnis.
Samstarf og samhæfð vinna - Við vinnum lausnir út frá virku samstarfi við viðskiptavini, hönnuði, byggingaryfirvöld og aðra hagsmunaaðila til að tryggja skýrleika og árangur.
Öryggi, umhverfi, hagkvæmni og notagildi - Við höfum öryggi, umhverfi, kostnað og notagildi lausna að leiðarljósi í öllu ferlinu og á líftíma verkefnins.
Samræming og lausnir - Við vekjum athygli á mögulegu misræmi milli hönnuða eða annarra aðila sem getur haft áhrif á framgang verkefnis og leitum viðeigandi lausna í samstarfi með aðilum verkefnis.
Skýr framsetning niðurstaðna - Við setjum niðurstöður hönnunar fram á skýran og skiljanlegan hátt þannig að framkvæmdaaðilar og aðrir sérfræðingar geti án vandkvæða lagt mat á verkefnið og kostnað þess.
Stuðningur á framkvæmdatíma - Við veitum faglegan stuðning á framkvæmdatíma, svörum fyrirspurnum og bregðumst við athugasemdum með skjótum og skilvirkum hætti, sem stuðlar að góðri framvindu.
Nánari útfærsla.
-
01Aðalhönnun
ff
-
02Burðarþolshönnun
f
-
03Eignaskiptasamningar
f
-
04Hreinlætis-, hita- og lagnahönnu
f
-
05Hönnun Gatna, vega og brúa
f
-
06Hönnun hafnargerða og virkjana
f
-
07Loftræsihönnun
f