Hönnunarstjórnun
Við styðjum viðskiptavini í gegnum allt hönnunarferli með skipulögðu og markvissu verklagi. Við vinnum að því að móta skýra sýn á verkefnið og setja markmið þannig að öll vinna hönnuða sé skilvirk og árangursrík.
Yfirlit þjónustu
Við veitum ráðgjöf við skilgreiningu verkefnis og greinum hvaða sérgreinahönnuðir þurfa að koma að því. Hönnunarstjóri ráðleggur og aðstoðar við samningagerð og í framhaldi stýrir og heldur utan um vinnu hönnuða auk þess að tryggja nauðsynlegt upplýsingastreymi og samskipti á milli allra sem koma að hönnarferlinu.
Skilgreining verkefnis - Við vinnum með viðskiptum að því að móta skýra sýn á verkefnið, skilgreina markmið og þarfir til að tryggja farsæla framkvæmd.
Stjórnun – Hönnunarstjóri gerir áætlanir og fylgir eftir framvindu hönnar.
Samningar og samningagerð - Við aðstoðum við gerð samninga við hönnuði og önnur lykilatriði sem tryggja hagkvæmni og gæði verkefnisins.
Upplýsingamiðlun og samskipti - Við sjáum til þess að upplýsingar flæði á milli viðskiptavinar, hönnuða, seljenda og annarra aðila með markvissri miðlun, skýrum teikningum, reglulegum fundum og aðgengi að verkefnavef.