Okkar þjónusta
Vantar lýsingu
-
Þjónusta
Almenn ráðgjöf
Við veitum almenna ráðgjöf sem felst í að skilja og, eftir atvikum, skilgreina úrlausnarefni sem viðskiptavinur óskast eftir að unnin séu.
Lesa nánar -
Þjónusta
Byggingarstjórn
Við sjáum um alla umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og tryggjum að framkvæmdir séu í fullu samræmi við byggingarlög og reglugerðir. Við höfum yfirsýn yfir teikningar og verklýsingar, tryggjum að þær séu samþykktar af viðeigandi yfirvöldum og að breytingar séu uppfærðar og dreift á skipulegan hátt til allra hagsmunaaðila.
Lesa nánar -
Þjónusta
Hönnun
Við veitum alhliða hönnunarþjónustu þar sem við greinum þarfir viðskiptavina og mótum lausnir sem henta verkefninu. Við vinnum náið með öllum hagsmunaaðilum til að hönnunin uppfylli allar kröfur um gæði og notagildi.
- Aðalhönnun
- Burðarþolshönnun
- Eignaskiptasamningar
- Hreinlætis-, hita- og lagnahönnu
- Hönnun Gatna, vega og brúa
- Hönnun hafnargerða og virkjana
- Loftræsihönnun
Lesa nánar -
Þjónusta
Hönnunarstjórnun
Við styðjum viðskiptavini í gegnum allt hönnunarferli með skipulögðu og markvissu verklagi. Við vinnum að því að móta skýra sýn á verkefnið og setja markmið þannig að öll vinna hönnuða sé skilvirk og árangursrík.
Lesa nánar -
Þjónusta
Mælingar
Við framkvæmum mælingar í mannvirkjagerð með því að afla og vinna úr grunngögnum, framkvæma mælingar, sinna allri úrvinnslu mælinga og setja fram skýrar niðurstöður. Við höfum mikla þekkingu sem og tiltæk tæki og búnað til að veita góða þjónustu við mælingar.
Lesa nánar -
Þjónusta
Umsjón og eftirlit
Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu við umsjón og eftirlit á verkefnum. Við höfum góða yfirsýn yfir alla samninga og að umfang/kostnaður sé í samræmi við samningsskilmála og framvindu verkefna. Við leggjum til verkefnavef til að tryggja góða upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum.
Lesa nánar -
Þjónusta
Úttektir mannvirkja fyrir byggingarfulltrúa
Við bjóðum upp á þjónustu við úttektir mannvirkja fyrir byggingarfulltrúa. Það felur í sér að við tökum á móti og yfirförum öll gögn, skoðum mannvirkið á vettvangi og metum hvort það hafi verið byggt samkvæmt gildandi samþykktum.
Lesa nánar -
Þjónusta
Yfirferð hönnunargagna fyrir byggingarfulltrúa
Við veitum þjónustu við yfirferð á hönnunargögnum fyrir byggingarfulltrúa. Við förum yfir öll gögn með það í huga að þau uppfylli lög, reglugerðir og leiðbeiningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þjónustan felst í rýni á hönnunargögnum til að tryggja að öll atriði uppfylli tilskilin ákvæði.
Lesa nánar -
Þjónusta
Öflun tilboða og samningagerð
Við aðstoðum við að öflun tilboða og gerð samninga. Við ráðleggjum hvort samið sé við einn eða fleiri aðila. Nálgumst verktaka/þjónustuaðila/birgja beint eða í gegnum útboð í umboði verkkaupa í þeim tilgangi að koma á kaup-, verk- eða þjónustusamningi. Við tökum saman nauðsynleg gögn á öllum stigum þannig að allir aðilar geti gert sér glögga grein fyrir umfangi væntanlegs samnings og lagt mat á hagkvæmni, áhættur og ávinning. Við ráðleggjum við frágang endanlegra samninga.
Lesa nánar