Yfirferð hönnunargagna fyrir byggingarfulltrúa
Við veitum þjónustu við yfirferð á hönnunargögnum fyrir byggingarfulltrúa. Við förum yfir öll gögn með það í huga að þau uppfylli lög, reglugerðir og leiðbeiningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þjónustan felst í rýni á hönnunargögnum til að tryggja að öll atriði uppfylli tilskilin ákvæði.