Öflun tilboða og samningagerð
Við aðstoðum við að öflun tilboða og gerð samninga. Við ráðleggjum hvort samið sé við einn eða fleiri aðila. Nálgumst verktaka/þjónustuaðila/birgja beint eða í gegnum útboð í umboði verkkaupa í þeim tilgangi að koma á kaup-, verk- eða þjónustusamningi. Við tökum saman nauðsynleg gögn á öllum stigum þannig að allir aðilar geti gert sér glögga grein fyrir umfangi væntanlegs samnings og lagt mat á hagkvæmni, áhættur og ávinning. Við ráðleggjum við frágang endanlegra samninga.
Við getum boðið viðskiptavinum aðgang að útboðsvef sem auðveldar auðveldar öflun tilboða og samningsgerð. Útboðsvefurinn gerir samskipti við bjóðendur gagnsæ og rekjanleg.
Yfirlit þjónustu
Leit að hæfum samstarfsaðilum - Við greinum markaðinn og aðstoðum við að finna réttu verktakana, þjónustuaðila eða birgjana til að tryggja gæði, hagkvæmni og skilvirkni.
Fagleg ráðgjöf um samninga - Við veitum ráðgjöf um hvaða aðferð hentar best, semja beint eða leita tilboða frá fleiri aðilum með hagsmuni viðskiptavinarins að leiðarljósi.
Skýrleiki gagna og undirbúningur - Við tökum saman öll nauðsynleg gögn, þannig að allir aðilar hafi góða yfirsýn yfir umfang, áhættu og ávinning áður en gengið er til samninga.
Auglýsing gegnum TED - Við sjáum um að auglýsa útboð á Ted (Tenders Electronic Daily), sem er opinber vefgátt Evrópusambandsins fyrir opinber innkaup.
Gagnsætt rafrænt útboðskerfi – Veitir aðgang að útboðsgögnum, tekur við fyrirspurnum á tilboðstíma, móttekur tilboð og veitir yfirlit yfir niðurstöður í skýrslu eða á opnunarfundi.
Samningagerð - Við aðstoðum við lokaúrvinnslu samninga, yfirferð og samþykkt, þannig að allt sé í samræmi við hagsmuni viðskiptavinarins.