Almenn ráðgjöf

Almenn ráðgjöf

Ráðgjöf felst í að skilja og eftir atvikum skilgreina úrlausnarefni sem viðskiptavinur óskar eftir að leyst sé. Unnið er fyrir og með viðskiptavininum að niðurstöðu að því að finna viðeigandi lausnir, þar sem þekking og reynsla ráðgjafans er nýtt til að ná árangri.

Ráðgjöf getur meðal annars falist í að skipuleggja og setja upp vinnuferli, afla upplýsinga og þekkingar, eiga samstarf með viðskiptavinunum við að móta sameiginlegar niðurstöður, rýna tillögur og lausnir ásamt því að koma með ábendingar um úrbætur.

Þá felst einnig í ráðgjöf að ganga frá niðurstöðum og skilgreina og styðja við aðgerðir til að koma lausnum í framkvæmd.

Næsta Þjónusta
Byggingarstjórn — Við sjáum um alla umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og tryggjum að framkvæmdir séu í fullu samræmi við byggingarlög og reglugerðir. Við höfum yfirsýn yfir teikningar og verklýsingar, tryggjum að þær séu samþykktar af viðeigandi yfirvöldum og að breytingar séu uppfærðar og dreift á skipulegan hátt til allra hagsmunaaðila.