Byggingarstjórn

Byggingarstjórn

Hlutverk byggingastjóra samkvæmt byggingareglugerð felur m.a í sér umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og eftirlit með að framkvæmt sé í samræmi við byggingarlög og reglugerðir.

Við höfum umsjón með samskiptum við opinbera aðila, fylgjum eftir skráningu gagna og fylgjumst með að framkvæmdin sé í samræmi við samþykktar teikningar, verklýsingar og viðeigandi reglur.

Yfirlit þjónustu

Byggingarstjórn felur í sér heildstætt utanumhald með framkvæmdinni frá upphafi til loka. Þannig höfum við yfirsýn yfir allar teikningar og verklýsingar og að þær séu samþykktar af þar til bærum yfirvöldum og breytingar uppfærðar eftir þörfum og þeim dreift. Við tryggjum að viðkomandi iðnmeistarari hafi aðgang að gildandi teikningum og verklýsingum á hverjum tíma.

Markmiðið er skipulagt, skilvirkt og öruggt framkvæmdarferli þar sem upplýsingar eru réttar, aðgengilegar og rekjanlegar.

Lög og reglur - Við höfum umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og fylgjum eftir að framkvæmdin sé í samræmi við lög og reglugerðir.

Yfirsýn - Við höfum yfirsýn yfir allar teikningar og verklýsingar og að gögn séu samþykkt af viðeigandi aðilum. Allar breytingar eru skráðar og uppfærðar.

Gild verkgögn - Við sjáum til þess að iðnmeistarar og aðrir aðilar sem koma að verkefninu hafi ávallt aðgang að nýjustu útgáfum af teikningum og verklýsingum til að fyrirbyggja misskilning á verkstað.

Úttektir – Við framkvæmum úttektir í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar og niðurstöður þeirra eru skráðar og rekjanlegar

Næsta Þjónusta
Hönnun — Við veitum alhliða hönnunarþjónustu þar sem við greinum þarfir viðskiptavina og mótum lausnir sem henta verkefninu. Við vinnum náið með öllum hagsmunaaðilum til að hönnunin uppfylli allar kröfur um gæði og notagildi.