Fjörður viðbygging

Verkkaupi
Hafnarfjarðarbær
Ár
2023 – í gangi
Staður
Hafnarfjörður
Hlutverk · 04
  • Byggingarstjórn
  • Hönnunarstjórnun
  • Öflun tilboða og samningagerð
  • Umsjón og eftirlit
Fjörður viðbygging
Fjörður viðbygging
Fjörður viðbygging 01

Strendingur var byggingarstjóri á viðbyggingunni við Fjörð í miðbæ Hafnarfjarðar sem er um 8.700 fermetrar. Þar voru byggðar 31 lúxus íbúð staðsettar frá annari upp á sjöundu hæð. Á fyrstu hæð viðbyggingar er verslunarrými með fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum. Á annari hæð er  nútíma bókasafn, margmiðlunarsetur sem býður upp á vinnuaðstöðu, bókakaffi, hljóðver, funaaðstöðu og fl.  Hótel íbúðir voru byggðar í húsum sem snúa að Strandgötu með verslunum á neðri hæðum. Bílakjallari er undir allri byggingunni sem tengist yfir í bílakjallarann sem var fyrir.

Hvaða þjónustu við veittum.

Í þessu verkefni komu 4 fagsvið saman undir einu þaki Strendings.

  1. Byggingarstjórn
    Við sjáum um alla umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og tryggjum að framkvæmdir séu í fullu samræmi við byggingarlög og reglugerðir. Við höfum yfirsýn yfir teikningar og verklýsingar, tryggjum að þær séu samþykktar af viðeigandi yfirvöldum og að breytingar séu uppfærðar og dreift á skipulegan hátt til allra hagsmunaaðila.
  2. Hönnunarstjórnun
    Við styðjum viðskiptavini í gegnum allt hönnunarferli með skipulögðu og markvissu verklagi. Við vinnum að því að móta skýra sýn á verkefnið og setja markmið þannig að öll vinna hönnuða sé skilvirk og árangursrík.
  3. Umsjón og eftirlit
    Við bjóðum upp á heildstæða þjónustu við umsjón og eftirlit á verkefnum. Við höfum góða yfirsýn yfir alla samninga og að umfang/kostnaður sé í samræmi við samningsskilmála og framvindu verkefna. Við leggjum til verkefnavef til að tryggja góða upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum.
  4. Öflun tilboða og samningagerð
    Við aðstoðum við að öflun tilboða og gerð samninga. Við ráðleggjum hvort samið sé við einn eða fleiri aðila. Nálgumst verktaka/þjónustuaðila/birgja beint eða í gegnum útboð í umboði verkkaupa í þeim tilgangi að koma á kaup-, verk- eða þjónustusamningi. Við tökum saman nauðsynleg gögn á öllum stigum þannig að allir aðilar geti gert sér glögga grein fyrir umfangi væntanlegs samnings og lagt mat á hagkvæmni, áhættur og ávinning. Við ráðleggjum við frágang endanlegra samninga.

Hvar verkefnið er.

Staðsetning Hafnarfjörður
Næsta verkefni
Ásland 4
2023 – í gangi · Umsjón og eftirlit