Samþykkt 19.08.2026

Stefna og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi.

1

Stefna

Strendingur leggur áherslu á öryggi í starfi og góðan starfsanda þar sem samskipti einkennast af gagnkvæmri virðingu, kurteisi og jákvæðu viðmóti. Einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi er með öllu óheimil, í hvaða mæli eða mynd sem það birtist. Slíkt er hvorki liðið í samskiptum starfsfólks né í samskiptum starfsfólks við einstaklinga sem starfsmaður þarf að hafa samskipti við vegna starfs síns. Það er á ábyrgð bæði stjórnenda og starfsfólks að fyrirbyggja og bregðast við slíkri hegðun og mikilvægt að starfsfólk láti vita ef upp koma neikvæð og erfið samskipti svo hægt sé að taka á málum.

2

Markmið

Markmið stefnu og viðbragðsáætlunar Strendings gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO) er að tryggja að úrræði séu til staðar í samræmi við lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn EKKO á vinnustöðum. Samkvæmt lögum nr. 150/2020 skulu atvinnurekendur og yfirmenn stofnana gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað. Viðbragðsáætlunin nær yfir samskipti starfsfólks Strendings og annarra sem það á samskipti við í tengslum við starf sitt.

Skilgreiningar á hugtökum skv. reglugerð nr. 1009/2015

Einelti: Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.

Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi

Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

Ofbeldi: Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.

Þolandi: Sá sem telur sig verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilegri háttsemi.

Gerandi: Sá sem kvörtun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi eða ótilhlýðilega háttsemi beinist að.

3

Forvarnir

Mikilvægt er að allt starfsfólk Strendings þekki stefnu og viðbragðsáætlun EKKO og sé meðvitað um ábyrgð allra starfsmanna á því að viðhalda heilbrigðri og jákvæðari vinnustaðamenningu. Upplifun einstaklingsins skiptir meginmáli þegar rætt er um einelti og aðra ótilhlýðilega hegðun. Sérhver þolandi verður sjálfur að meta hvaða framkomu hann umber, frá hverjum og segja frá sé honum misboðið. Leggja skal ríka áherslu á að brugðist sé við tilkynningu hið fyrsta í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að hegðunin endurtaki sig og koma þannig í veg fyrir frekari skaða. Stjórnendur skulu kynna viðbragðsáætlunina fyrir nýju starfsfólki og sjá til þess að hún sé ávallt aðgengileg fyrir starfsfólk. Áætlunina skal rifja upp reglulega t.d. á starfsmannafundum. Stefnuna og viðbragðsáætlunina skal endurskoða reglulega og kynna breytingar starfsfólki, ef þær verða.

4

Viðbragðsáætlun

4.1

Tilkynning

Starfsmaður sem verður fyrir eða verður vitni að einelti, kynbundinni eða kynferðislegri áreitni eða ofbeldi skal tilkynna um atvikið til framkvæmdastjóra eða til öryggistrúnaðarmanns sem fer með málið til framkvæmdastjóra. Almennt fer framkvæmdastjóri með rannsókn máls en hann getur leitað aðstoðar til utanaðkomandi ráðgjafa. Framkvæmdastjóri ræðir við meintan þolanda um kvörtunina og metur í samvinnu við hann næstu skref. Ef framkvæmdastjóri er vanhæfur til að taka að sér rannsókn máls er því strax vísað til staðgengils framkvæmdastjóra eða utanaðkomandi aðila. Allar upplýsingar sem varða þessi mál verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verða skrifleg gögn varðveitt á öruggum stað á ábyrgð framkvæmdastjóra í samræmi við lög um persónuvernd. Hlutaðeigandi starfsfólki er veittur aðgangur að gögnum eftir því sem það óskar og lög um persónuvernd heimila.

4.2

Óformlegt ferli

Ef starfsmaður óskar eftir óformlegri málsmeðferð eða trúnaði um kvörtun eða ábendingu þarf að meta hvort það sé heimilt skv. lögum. Ef unnt er að verða við því er upplýsinga aflað og stuðningur veittur með ráðgjöf eða trúnaðarsamtali. Grípa skal til viðeigandi aðgerða í samráði við starfsmann og skulu aðrir innan vinnustaðarins ekki upplýstir um málið. Tryggja þarf eftirfylgni málsins, fylgjast með líðan starfsfólks og meta hvort frekari aðgerða sé þörf.

4.3

Formlegt ferli

Framkvæmdastjóri fer með rannsókn málsins í samvinnu við utanaðkomandi ráðgjafa ef þess er þörf.

4.4

Upplýsingagjöf

  1. Tilkynna skal meintum geranda og meintum þolanda um að athugun fari fram. Þeim er boðin ráðgjöf eða trúnaðarsamtal við utanaðkomandi ráðgjafa/sálfræðing.
  2. Stjórn skal upplýst um málið eftir atvikum og taka þátt í rannsókn málsins. Aðrir skulu ekki upplýstir nema nauðsyn krefji. Ef meintur gerandi er starfsmaður samstarfsfyrirtækis Strendings er rætt við stjórnanda meints geranda.
4.5

Rannsókn máls

  1. Framkvæmdastjóri í samvinnu við utanaðkomandi ráðgjafa gerir hlutlausa athugun á málsatvikum. Hann ræðir bæði við meintan þolanda og meintan geranda og fær upplýsingar sem eiga að varpa ljósi á aðstæður. Hann leitar upplýsinga um tímasetningar og önnur gögn ef einhver eru, svo sem tölvupósta, smáskilaboð eða annað. Hann ræðir einnig við vitni eða samstarfsfólk ef þurfa þykir. Skráð er atvikalýsing, frásögn aðila og annað það sem skipt getur máli. Jafnframt er skráð niðurstaða rannsóknar og hvaða aðgerða er gripið til. Huga þarf sérstaklega að vistun allra gagna.
  2. Ef niðurstaða rannsóknar leiðir í ljós að einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi sé talið hafa átt sér stað þarf að ákveða hvaða aðgerða skal grípa til.
4.6

Aðgerðir

  1. Framkvæmdastjóri leitar lausna með utanaðkomandi ráðgjafa sem m.a. geta falist í breytingum á vinnustaðnum, vinnubrögðum eða vinnuskipulagi. Tryggja þarf að aðstæður á vinnustað skapi ekki áframhaldandi hættu á slíkri hegðun.
  2. Framkvæmdasstjóri í samstarfi við utanaðkomandi ráðgjafi vinnur í því að koma samskiptum aftur í viðunandi horf og að öllum líði vel á vinnustaðnum.
  3. Ef einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi er talin hafa átt sér stað og mál telst alvarlegt skal áminna gerandann eða eftir atvikum segja honum upp.
  4. Sé mál talið alvarlegt skal leitað til lögreglu. Samstarfsfélögum er veittur viðeigandi stuðningur eða önnur aðstoð ef þörf er á. Þegar litið er á að máli sé lokið skal upplýsa hlutaðeigandi starfsfólki um það ásamt stjórnendum samstarfsfyrirtækis Strendings ef við á. Tekið verður á fölskum ásökunum um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni og ofbeldi af sömu festu og þessari hegðun almennt.
4.7

Eftirfylgni

Framkvæmdastjóri fylgist áfram með líðan málsaðila og aðstæðum. Að athugun lokinni skal grípa til aðgerða til að varna að slíkt komi fyrir aftur. Í þessu felst að gripið verði til ráðstafana og aðgerða sem eru til þess fallnar að verja starfsfólk fyrir slíku áreiti. Viðbragðsáætlunin er endurskoðuð reglulega og í samræmi við reynslu af vinnslu mála sem tilkynnt er um á vinnustaðnum.

Næsta stefna
Gæða-, umhverfis-, og öryggisstefna