Fimleikahús á Seltjarnarnesi
Útboð, byggingarstjórn og eftirlit með nýju fimleikahúsi og endurbótum á íþróttamiðstöð.
- Verkkaupi
- Seltjarnarnesbær
- Ár
- 2017 – 2019
- Staður
- Seltjarnarnes
- Hlutverk · 03
-
- Öflun tilboða og samningagerð
- Byggingarstjórn
- Umsjón og eftirlit
Hvaða þjónustu við veittum.
Í þessu verkefni komu 3 fagsvið saman undir einu þaki Strendings.
-
ByggingarstjórnVið sjáum um alla umsjón með samskiptum við byggingaryfirvöld og tryggjum að framkvæmdir séu í fullu samræmi við byggingarlög og reglugerðir. Við höfum yfirsýn yfir teikningar og verklýsingar, tryggjum að þær séu samþykktar af viðeigandi yfirvöldum og að breytingar séu uppfærðar og dreift á skipulegan hátt til allra hagsmunaaðila.
-
Umsjón og eftirlitVið bjóðum upp á heildstæða þjónustu við umsjón og eftirlit á verkefnum. Við höfum góða yfirsýn yfir alla samninga og að umfang/kostnaður sé í samræmi við samningsskilmála og framvindu verkefna. Við leggjum til verkefnavef til að tryggja góða upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum.
-
Öflun tilboða og samningagerðVið aðstoðum við að öflun tilboða og gerð samninga. Við ráðleggjum hvort samið sé við einn eða fleiri aðila. Nálgumst verktaka/þjónustuaðila/birgja beint eða í gegnum útboð í umboði verkkaupa í þeim tilgangi að koma á kaup-, verk- eða þjónustusamningi. Við tökum saman nauðsynleg gögn á öllum stigum þannig að allir aðilar geti gert sér glögga grein fyrir umfangi væntanlegs samnings og lagt mat á hagkvæmni, áhættur og ávinning. Við ráðleggjum við frágang endanlegra samninga.
Hvar verkefnið er.
Staðsetning
Seltjarnarnes