Íþróttamiðstöð Hauka
Umsjón hönnunar (sjö útboð) og eftirlit á 5760 m2 nýbyggingu íþróttahúss og lóðar umhverfis íþróttahúsið.
- Verkkaupi
- Hafnarfjarðarbær
- Ár
- 1998 – 2001
- Hlutverk · 04
-
- Hönnunarstjórnun
- Öflun tilboða og samningagerð
- Umsjón og eftirlit
- Almenn ráðgjöf
Hvaða þjónustu við veittum.
Í þessu verkefni komu 4 fagsvið saman undir einu þaki Strendings.
-
Almenn ráðgjöfVið veitum almenna ráðgjöf sem felst í að skilja og, eftir atvikum, skilgreina úrlausnarefni sem viðskiptavinur óskast eftir að unnin séu.
-
HönnunarstjórnunVið styðjum viðskiptavini í gegnum allt hönnunarferli með skipulögðu og markvissu verklagi. Við vinnum að því að móta skýra sýn á verkefnið og setja markmið þannig að öll vinna hönnuða sé skilvirk og árangursrík.
-
Umsjón og eftirlitVið bjóðum upp á heildstæða þjónustu við umsjón og eftirlit á verkefnum. Við höfum góða yfirsýn yfir alla samninga og að umfang/kostnaður sé í samræmi við samningsskilmála og framvindu verkefna. Við leggjum til verkefnavef til að tryggja góða upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum.
-
Öflun tilboða og samningagerðVið aðstoðum við að öflun tilboða og gerð samninga. Við ráðleggjum hvort samið sé við einn eða fleiri aðila. Nálgumst verktaka/þjónustuaðila/birgja beint eða í gegnum útboð í umboði verkkaupa í þeim tilgangi að koma á kaup-, verk- eða þjónustusamningi. Við tökum saman nauðsynleg gögn á öllum stigum þannig að allir aðilar geti gert sér glögga grein fyrir umfangi væntanlegs samnings og lagt mat á hagkvæmni, áhættur og ávinning. Við ráðleggjum við frágang endanlegra samninga.
Hvar verkefnið er.
Staðsetning